31.5.06


Reyklausi dagurinn...
Í dag er alþjóðadagur án tóbaks sem á að hvetja fólk til að nota tækifærið og hætta að reykja. Persónulega hef ég aldrei skilið hvað fær fólk upphaflega til að byrja að reykja. Mér fannst þetta aldrei kúl sem unglingur og fékk aldrei löngun til að ánetjast þessari fíkn enda hef ég aldrei tekið einn smók um ævina og efast um að ég fari að byrja á því héðan í frá. En ég er viss um að ef ég hefði einhvern tímann byrjað að þá væri ég kannski stórreykingarmanneskja í dag, því ég er svo öfgakennd, sbr. þegar ég naga þá nægir mér ekki að naga bara neglurnar, nei ég borða nánast puttana af mér eða þar til blæðir :/ Þegar ég er í tyggjóstuði þá fæ ég mér kannski 3 extra tyggjó pakka á dag eða þar til mig verkjar í kjálkana, þegar ég fæ mér varasalva þá smyr ég svona 30 sinnum Labello á varirnar, þegar ég fæ mér nammi þá kaupi ég bland í poka fyrir 400 kr. og klára það allt og svo mætti lengi telja. En þetta er nú allt skaðlaust svo sem.... eða hvað?
En allavegana þá bara skil ég einfaldlega ekki að fólk skuli yfir höfuð reykja enn þann dag í dag miðað við alla þá fræðslu sem er í gangi fyrir utan hvað þetta er hrikalega dýrt og viðbjóðsleg lykt sem fylgir þessu, þetta var öðruvísi í gamla daga þá vissi fólk ekki eins mikið um skaðsemi reykinganna. Mér skildist á fréttum í morgun að það séu um 20 % landsmanna sem reyki og mér finnst það bara ansi hátt hlutfall af þjóðinni.

29.5.06

KATRÍN GÆS...

Þar sem Katrín er að verða FRÚ þann 17. júní nk. þá slapp hún að sjálfsögðu ekki við gæsun og var síðasti laugardagur tilvalin í hefðbundin gæsastörf ;) Haft var á orði að um óvenju vel tamda gæs væri að ræða því hún stóð sig eins og hetja allan daginn!!!


allt 016 allt 022 allt 043 allt 045
allt 063 allt 056 allt 067

23.5.06

Jæja þið eruð svona hress....

Svo sem mest lítið að frétta hjá mér, allt bara svona við það sama. Er búin að horfa á 2 þætti af OC í dag, prjóna eina ermi á lopapeysu, lesa soldið í góðri bók og já bara svona hitt og þetta og já ætli ég sé ekki búin að pissa svona ca 25 sinnum, já þetta er búið að vera bissí dagur í dag ;)

Kristján er á ljósmyndanámskeiði sem ég gaf honum í jólagjöf og ég hef voða lítið séð hann síðan hann byrjaði. Hann er búinn að vera taka myndir hér og þar um bæinn, úti og inni og allstaðar og er alveg orðinn sjúkur í þetta. Ég var síðan búin að lofa honum að halda í mér fram yfir þetta námskeið og síðasti tíminn er í kvöld svo það virðist ætla að takast! og þó veit maður ekki ;)

En þessi er alltaf jafn skotin í mér..... það vantar ekki!!!!

Ég horfði út um gluggann í dag og ég sá snjókorn, eigum við að ræða það e-ð frekar ???

22.5.06

Nú er ég sjúk í ....
Pakka-hafragraut með kanil og eplum sem ég hita í örbylgjuofninum í 2 mínútur. Þegar ég tek gómsætan heitan grautinn úr ofninum bæti ég við hann 1 banana, smá dass af rúsínum og slatta af apríkósum!!!
Þetta gerist ekki betra ;OÞ

19.5.06

Árleg vonbrigði....
Jæja ætli við komumst einhvern tímann upp úr þessari undankeppni... ??? Úfff þetta var nú hálf vandræðalegt, var hún svona stressuð eða hvað var í gangi, ansi andstutt hjá mér stelpan. Samt kannski ekki auðveldast í heimi að koma fram fyrir framan alþjóð þegar maður er púaður niður svona allhressilega, þó svo að maður sé Silvía Nótt þá hlýtur það að vera doldið erfitt... eða hvað haldiði! Hún auðvitað bauð upp á þetta. Jæja hver verður sendur út næst ? Spennandi... En ég gæti trúað því að hún Ágústa Eva þyrfti góðan mánaðarskammt á heilsuhælinu í Hveragerði eftir þetta allt saman, hlýtur að taka á að vera allan sólarhringinn í þessum karakter.... úffff!!!
Annars bara svipað af frétta af mér og mínum, er ennþá ólétt ;) en er svona farin að geta hreyft mig pínu meira. Gerðist meira að segja svo djörf að skella mér í sund áðan, ansi notalegt að svamla aðeins með kúluna í lauginni ;)

16.5.06



Smá fréttir...
Langt síðan síðast og ýmislegt gengið á. Málið er að litla krílið okkar var orðið svo spennt að sjá okkur foreldrana svo það reyndi að flýta sér í heiminn allt of snemma eða þegar ég var komin rúmar 32 vikur. Ég var þess vegna lögð inn á meðgöngudeild og gefin lyf til að koma í veg fyrir samdrætti, allt gert til að reyna að stöðva fæðingu og fékk líka sprautu með sterum til að flýta fyrir lungnaþroska barnsins. Fékk síðan að fara heim eftir nokkra daga á spítalanum með því skilyrði að ég tæki því mjög rólega. Svo ég er búin að vera bara nánast rúmliggjandi heima síðan, hef voða lítið getað hreyft mig því þá fer allt á fullt :/ en það munar um hvern dag svo ég er búin að vera ofsa dugleg að reyna að halda í mér ;)