27.6.05

Merkisdagur í gær..........

Bryndís Alexandersdóttir varð 25. ára.

bryndis
Hér er Bryndís með Kolfinnu Mist sína

Já ég get nú sagt ykkur það að ég er búin að þekkja hana Bryndísi mína í heil 25 ár og þykir mér ofsalega vænt um stúlkukindina enda ótal hlutir sem við höfum brallað saman í gegnum tíðina... :O)
Finnst svo stutt síðan við vorum bara pínu litlar skottur að skottast á Stk.og nú er farið að styttast í þrítugsaldurinn!
Það voru bara 2 hús á milli okkar og við gerðum allt saman. Alla skólagönguna okkar þá gengum við samferða í skólann og kemur ýmislegt upp í hugann þegar ég rifja þær gönguferðir upp... híhí ;) Bryndís er algjör morgunhani og alla morgna var hún mætt á Sæberg, prúðbúin og fín og tilbúin til að ganga áfram í skólann. En alltaf lá ég þá enn upp í rúmi steinsofandi, átti eftir að klæða mig, greiða mér, borða ca 6 diska af honey nut cheeriosi og tannbursta mig og ég tók mér bara góðan tíma í þetta :/ Mér finnst ég skulda henni endalaust af þolinmæði!!!
Núna er Bryndís ekki lítil lengur, orðin 25 ára og á orðið 2 yndislegar stelpur. Svo flýgur hún í gegnum háskólann svona rétt á milli þess sem hún skiptir um bleyjur ;)

Mér finnst þú algjör HETJA!!! og aftur innilega til hamingju með afmælið þitt.

Kossar og knús ;O*
She